A A A

Ţorsteinn Jóhannesson ráđinn framkvćmdastjóri lćkninga

7.05 2009 | Ţröstur Óskarsson
Á fundi framkvæmdastjórnar stofnunarinnar þann 5. maí var samþykkt að ráða Þorstein Jóhannesson yfirlækni sem framkvæmdastjóra lækninga.

Þorsteinn er fæddur á Ísafirði 1951 og lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1977. Hann fékk sérfræðileyfi í almennum skurðlækningum 1985 og 1986 í Þýskalandi. Hann lauk doktorsnámi 1989 og fjallaði doktorsverkefnið um horfur í bráðri briskirtilsbólgu.
Þorsteinn hefur verið yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði frá 1990.

Heilbrigđisstofnun Vestfjarđa

23.02 2009 | Ţröstur Óskarsson
Þann 1. janúar 2009 runnu Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík og Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ saman í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Reglugerðina um sameininguna má sjá á vef Heilbrigðisráðuneytisins.

Grillveisla á skýlinu

4.07 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Hálfdán Einarsson fyrrum skipstjóri naut dagsins
Hálfdán Einarsson fyrrum skipstjóri naut dagsins
Nú hafa verið settar inn nýjar myndir frá grillveislu heilsueflingarinnar, þema dagsins voru slæður, veðrið lék við alla á meðan borðaður var úrvals grillmatur  beint  úr eldhúsinu hjá Stínu Karvels matráði, ekki var staðar numið þar heldur var skálað eins og oft vill vera þegar góður hópur kemur saman,  Benni Sig kom með nikkuna og tók nokkra valsa og ræla. Stíginn var dans og fjörið og gleðin í fyrirrúmi, frábær dagur hjá bæði skjólstæðingum og starfsfólki. Fleiri myndir eru undir myndasafni hér til vinstri á síðunni.

Biskup međ helgistund á sjúkraskýlinu

13.06 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Biskup Ísland,herra Karl Sigurbjörnsson verður með helgistund á sjúkraskýlinu laugardaginn 21 júní n.k. Milli kl: 16 og 17

Íbúđ óskast til leigu.

30.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir


Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík óskar eftir að taka á leigu góða 4. herbergja íbúð
eða einbýlishús fyrir lækni. Leigutími frá 1. júlí n.k. til 31. ágúst 2009.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við stofnunina sem fyrst með upplýsingar um
verð og fleira sem máli skiptir.

Upplýsingar gefur Þröstur Óskarsson forstjóri sími 450-4500 throstur@fsi.is

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fćdd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón