A A A

Nýjar myndir

27.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir

Á myndasafni síðunar er verið að safna saman myndum af læknum stofnunarinnar fyrr og síðar, það er Kristín Halldórsdóttir læknaritari sem skannar myndirnar inn og þökkum við kærlega fyrir það. Á fyrstu myndunum má sjá Ágúst Oddsson, læknir frá 1987- 2001 en hann er nú yfirlæknir á Hvammstanga,  Guðrúnu  Björk Reynisdóttur, sumarlæknir 1999 (Langömmubarn Maríu Rögnvaldsdóttur) og Bergþór Björnsson, sumarlæknir 2001. Fleiri myndir eru svo væntanlegar.

Til hamingju Fanney og Íris

21.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Mikil fjölgun hefur átt sér stað hjá Heilbrigðisstofnuninni í maí mánuði, Fanney sjúkraþjálfari eignaðist myndar dreng og Íris læknir sömuleiðis. Við óskum þeim og eiginmönnum þeirra  innilega til hamingju með prinsana.  Það er gott, þegar gott fólk fjölgar sér segir einhversstaðar og eru það orð að sönnu.

Helgistund á skýlinu

19.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Helgistund verður haldin á sjúkraskýlinu, miðvikudaginn 21 maí, kl 14.45. Prestur er séra Agnes M. Sigurðardóttir.

Bólusetningar ferđamanna

13.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir

 Mikilvægt er að hafa í  huga þá hættu sem kann að ógna heilsunni  ásamt því hvaða bólusetningar eru nauðsynlegar þegar  land er lagt undir fót. Fjölmargir smitsjúkdómar eru landlægir í suðlægum löndum, einkum í hitabeltinu. Á heimasíðu landlæknis er að finna upplýsingar undir tenglinum "bólusetningar ferðamanna " , einnig er hægt að finna upplýsingar ásamt ýmsum almennum atriðum í tengslum við ferðir til annarra landa  hjá Miðstöð sóttvarna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heilsugæslustöðvum landsins þar á meðal í Bolungarvík og öðrum aðilum sem fengið hafa til þess leyfi sóttvarnalæknis, s.s. InPro ehf., Skipholti 50b, og Ferðavernd ehf í Læknasetrinu í Mjódd  Hvetjum við fólk til að hafa þetta í huga, góða ferð.

Kvensjúkdómalćknir

2.05 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
kvensjúkdómalæknir verður á Ísafirði dagana 14-17 maí. Tímapantanir í síma 450-4500.

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fćdd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón