A A A

Helgistund á skýlinu

21.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Helgistund verður á sjúkraskýlinu, miðvikudaginn 23 apríl, kl:14.45. Prestur er séra Agnes M. Sigurðardóttir.

Heilsuefling á vinnustöđum

16.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir

Hér er skemmtilegt og fræðandi efni tekið af heimasíðu Lýðheilsustöðvar um Heilsueflingu á vinnustöðum sem miðar að því að bæta heilsu og líðan vinnandi fólks, bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi, hvetja til virkrar þátttöku og áframhaldandi þroska einstaklingsins og efla mannauð vinnustaða.

Endilega kíkjið á slóðina:

http://ged.is/media/lydheilsa//Heilsuefling_
a_vinnustodum_NM30398r_lores.pdf

Laus stađa sjúkraţjálfara

11.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík auglýsir eftir sjúkraþjálfara til starfa eftir 1 mai 2008.
Um er að ræða tímabundna afleysingu í fullu starfi.
Unnið er bæði við öldrunarsvið og göngudeildar meðferðir.
Starfið er mjög fjölbreytt og vinnuaðstaða góð.

Laun samkvæmt kjarasamningi BHM. Einnig er möguleiki á verktakavinnu.

Nánari upplýsingar veitir Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari í síma 456-7248/ 864-4474
(til 1. mai : fanney@vestfirdir.is eftir 1. mai á nordurvegur2@hive.is )
Vinsamlegast sendið umsóknir til:
Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík Miðstræti 19, 415 Bolungarvík.
Umsóknarfrestur til 1.05.2008
Öllum umsóknum verður svarað þegar, ráðning hefur verið ákveðin.

Bćklunarlćknir á Ísafirđi.

10.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir

Ríkharður Jónsson bæklunarlæknir verður á FSÍ dagana 14-18 apríl. Tímapantanir í síma 450-4500.

Félagasamtök og ýmis fróđleikur

9.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir

Hér til vinstri undir Tenglar er að finna heimasíður flestra félagasamtaka ásamt ýmsum fróðleik.   Mikil þörf hefur verið til staðar fyrir aðstandendur svo og einstaklinga að allt efnið sé aðgengilegt á einum stað.  Á flestum heimasíðunum er hægt að koma með fyrirspurnir, lesa sig til um sjúkdóma, gerast styrktaraðilli og fá upplýsingar um hjálpartæki.

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fćdd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón