Helgistund á Skýlinu
9.04 2008 | Fjóla Bjarnadóttir
Endurhæfingarsviði sjúkraþjálfunar var í dag afhent gjöf frá Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra hér í Bolungarvík,að þessu sinni var gefið ferðaútvarp með geilsaspilara sem kemur m.a. að góðum notum við dansæfingar hjá leikfimihóp eldri borgara. Sjálfsbjörg er hér með færðar kærar þakkir fyrir en Anna Torfadóttir formaður kom færandi hendi og birtist með gjöfina óvænt í æfingarsal sjúkraþjálfara. Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari segir aðstöðu í salnum vera frábæra og það beri helst að þakka Sjálfsbjörgu hér í bænum.