Á dögunum gaf Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Bolungarvík,Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur góðar gjafir. Tækin þrjú hafa nú verið afhend formlega, Heilsugæslan fékk ljósalampa fyrir húðsjúkdóma og Sjúkraþjálfunin fékk þrekhjól og cross trainer (fjölþjálfa).
Þröstur Óskarsson framkvæmdarstjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur tók á móti gjöfunum við hátíðlega athöfn og þakkaði félögum í Sjálfsbjörg fyrir tækin og afhenti félaginu þakkarskjal frá stofnuninni.
Sjálfsbjörg hefur gefið öll þau tæki sem eru í aðstöðu Sjúkraþjálfunar fyrir eigið söfnunarfé, helstu fjáraflanir félagsins eru sólarpönnukökubakstur ásamt jólabingói. Andvirði þessara tækja sem Sjálfsbjörg gaf nú er um hálf milljón króna. Mikilvægt er að eiga svona gott félag í bænum sem styður við bakið á þeim sem á þurfa að halda og láta vel að mannúðarmálum