Bólusetningar
Heilsugæslan annast allar almennar bólusetningar:
* Ungbarnabólusetningar og bólusetningar í skólum
* Ferðamannabólusetningar
* Bólusetningar við innflúensu og lungnabólgu
Hvað er bólusetning?
Bólusetning er ónæmisaðgerð sem ætluð er að koma í veg fyrir alvarlegan smitsjúkdóm. Bóluefnin eru ýmist unnin er veikluðum veirum eða bakteríum eða þau innihalda efni sem finnast í þessum sýklum. Bóluefnin sjálf valda oftast litlum einkennum en vekja upp mótefnasvörun í líkamanum sem kemur í veg fyrir eða dregur úr líkum á að fólk veikist af sjúkdómnum sem bólusett er gegn.
Sjá nánar um bólusetningar á vef landlæknisembættisins http://www.landlaeknir.is/?pageID=855
