Heimahjúkrun
Markmið heimahjúkrunar
Markmið heimahjúkrunar er að gera einstaklingum kleift að dveljast heima við eðlilegar aðstæður eins lengi og unnt er miðað við heilsufar og félagslegar aðstæður, í náinni samvinnu við einstaklinginn sjálfan og aðstandendur.
Hverjir fá heimahjúkrun?
Þeir sem búa í Bolungarvík og þurfa á heimahjúkrun að halda að mati hjúkrunarfræðings heimahjúkrunar eða læknis.
Hvernig fæ ég eða aðstandandi minn heimahjúkrun?
Best er að hringja í hjúkrunarfræðinginn á heilsugæslustöðina í síma 456 7287. Hjúkrunarfræðingur kemur svo í heimsókn til einstaklingsins þar sem þeir meta í sameiningu þá hjálp sem einstaklingurinn þarf. Oft er mikilvægt að hafa aðstandanda með í þeirri heimsókn.
aðrir starfsmenn heimahjúkrunar eru, Anna Björgmundsdóttir sjúkraliði 861-1431og Fjóla Bjarnadóttir sjúkraliði 895-7018
Hvað felst í heimahjúkrun?
Heimahjúkrun er byggð á vitjunum. Umönnunin felur í sér:
* Almenna aðhlynningu
* Aðstoð við persónulegt hreinlæti
* Aðstoð við böðun
* Lyfjagjafir
* Lyfjatiltekt
* Sáraskiptingar
* Aðra hjúkrunaraðstoð
* Heilsueflingu
* Andlegan stuðning og ráðgjöf
Stefnt er að því að gera einstaklinginn eins sjálfbjarga og unnt er, miðað við heilsu og líkamsþrek. Hjálpin á að vera hjálp til sjálfshjálpar.
Starfsfólk heimahjúkrunar, starfar i náinni samvinnu við starfsfólk heimilishjálpar sem Bolungarvíkurkaupstaður sér um.
Á vormánuðum 2008 verður til ný staða sjúkraliða við heilbrigðisstafnunina í Bolungarvík sem m.a verður notuð til að efla og auka heimahjúkrun.
Hjálpartæki
Ýmis hjálpartæki standa til boða. Þau létta þeim lífið sem hjúkrunina fá og létta þeim störfin sem hjúkrunina veita. Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í greiðslu á hjálpartækjum ef beiðni er undirrituð af lækni. Hjúkrunarfræðingur heimahjúkrunar og sjúkraþjálfari aðstoða og leiðbeina fólki við val og umsóknir um hjáplpartæki.
Gott að vita
Heimahjúkrun er einstaklingi að kostnaðarlausu.
Heimahjúkrun getur ýmist verið tímabundin eða til lengri tíma.
Hversu mikla aðstoð einstaklingur þarf getur verið misjafnt, stanslaust mat er því í gangi og fljótt er brugðist við ef aðstæður breytast hjá einstaklingnum.
Fari skjólstæðingur að heiman eða aðrar breytingar verða á högum hans sem nauðsynlegt er fyrir heimahjúkrun að vita, þarf að tilkynna það.
Hvenær fæ ég heimahjúkrun?
Alla virka daga frá kl 8-16. Ef þörf er á meiri aðstoð er reynt að mæta því og með þessu nýja stöðugildi sjúkraliða verður vonandi hægt að bjóða upp á kvöld- og helgarinnlit hjá þeim er það þurfa.
