Mæðravernd
Mæðravernd er eftir hádegi á miðvikudögum eða eftir samkomulagi.
Mæðravernd er sinnt af ljósmæðrum frá Ísafirði og heilsugæslulækni.
Verðandi feður eða annar stuðningsaðili eru ávallt velkomin í mæðraskoðanir.
Eldri systkini mega einnig koma með í samráði við ljósmæður.
Markmið mæðraverndar
Gæta að heilsu og líðan móður og fósturs með eftirliti, stuðningi og fræðslu.
Greina og meðhöndla frávik frá eðlilegri meðgöngu
Fyrsta mæðraskoðun
* Að jafnaði fer fyrsta mæðraskoðun fram þegar konan er gengin 12 vikur.
* Í fyrstu skoðun er gefin góður tími fyrir verðandi foreldra og lögð áhersla á fræðslu um meðgöngu og tilgang mæðraverndar. Þá er einnig bent á fræðslurit til frekari glöggvunar.
* Ljósmóðir gerir nákvæma mæðraskrá. Spurt er ýtarlega um heilsu konunnar. Farið er í fyrri meðgöngur og fæðingar konunnar auk félagslegra aðstæðna.
* Í mæðraskoðunum er konan vigtuð, blóðþrýstingurinn mældur og þvagið er stixað.
* Blóðprufa er tekið á 12.-14. viku. Þar er athugaður blóðflokkur og blóðhagur konunnur, mótefni gegn rauðum hundum, syfillis og HIV eru mæld.
* Ljósmóðir fer yfir þær fósturgreiningar sem í boði eru. Ómskoðanir fara fram á Heilbrigðisstofnuninni Ísafjarðarbæ og sjá ljósmæðurnar um að gefa verðandi móður tíma þar.
Eftir fyrstu skoðun
* Fjöldi skoðana fer eftir aðstæðum hverrar konu.
* Fyrsta mæðraskoðun er yfirleitt um 12 vikur, svo kemur konan mánaðarlega fram að 28.viku, hálfsmánaðarlega að 36. viku og vikulega frá 37. viku - oftar ef þörf krefur.
* Hver skoðun tekur að jafnaði um 30 mínútur
* Í hverri skoðun er mældur blóðþrýstingur, hlustað eftir fósturhjartslætti, legbotnshæð er mæld ( eftir ca. 20. viku) og athugað er hvort sykur eða prótein finnist í þvagi eða grunur er um sýkingu.
* Fylgst er með þyngdaraukningu og líðan móður og hreyfingum fósturs.
* Fósturlega er mæld þegar líða fer að fæðingu.
* Í mæðraskoðunum fer fram fræðsla varðandi hreyfingu, næringu, verki, andlegar hliðar meðgöngu og fæðingar, brjóstagjöf og margt fleira.
* Ef frávik frá eðlilegri meðgöngu koma í ljós eru strax gerðar viðeigandi ráðstafanir.
Foreldrafræðslunámskeið eru í boði og veita ljósmæður allar upplýsingar um þau.
Eftirskoðun
Mælt er með að konur fari í eftirskoðun 6-8 vikum eftir fæðingu.
Mjög góð vefsíða um meðgöngu og mæðravernd : http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=1331
