Skólaheilsugæsla
Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 börn af 8 þjóðernum.
Hjúkrunarfræðingur er ekki með fasta viðveru en nemendur geta komið upp á heilsugæslustöð þegar þeim hentar og með leyfi kennara ef það er á skólatíma.
Markmið skólaheilsugæslu
Er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.
Hjúkrunarfræðingur vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda. Farið er með allar slíkar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Allt hefur áhrif einkum við sjálf
Grunnskóli Bolungarvíkur og Heilsubærinn Bolungarvík í samvinnu við bæjarstjórn og Heilsugæsluna bera ábyrgð á heilsueflingarverkefninu "Allt hefur áhrif einkum við sjálf" Verkefni þetta er samstarfsverkefni við Lýðheilsustöð. Markmið verkefnisins er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna, ungs fólks og fjölskyldna með áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði.
Reglubundnar skoðanir og bólusetningar
1.bekkur: Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðar-og þyngdarmæling
4.bekkur: Sjónpróf, hæðar- og þyngdarmæling
7.bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling, þyngdarmæling og athugun á litarskyni. Bólusett er gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta)
9.bekkur: Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðar- og þyngdarmæling. Mældur blóðþrýstingur. Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki og stífkrampa (tvær sprautur).
Líkamsskoðanir og bólusetningar fara fram á heilsugæslustöðinni.
Flúorskolun
Flúorskolun fer fram í skólanum hjá 1., 7. og 10.bekk tvisvar í mánuði. Ástæða þess að landlæknir mælir með því að þessir tilteknu bekkir fái flúorskolanir er sú að þessir aldurshópar eru í hvað mestri áhættu á tannskemmdum.
Lyfjagjafir
Ef barn þarf nauðsynlega að fá lyf á skólatíma er það gert í samvinnu við hjúkrunarfræðing og kennara. Foreldrar eru beðnir um að snúa sér til hjúkrunarfræðings ef um slíkt er að ræða.
Svefn og hvíld
Af gefnu tilefni viljum við benda foreldrum og forráðamönnum barn á hve mikilvægt er að skólabörn fái nægan svefn og hvíld. Séu þau ekki útsofin og vel hvíld geta þau ekki notið kennslunnar sé sinnt því starfi sem fer fram í skólanum. Þau verða þreytt og pirruð, þola illa langa setu á skólabekk og námsefnið fer fyrir ofangarð og neðan. Hæfilegur svefn- og hvíldartími er talinn vera 8-12 klst. og þurfa yngstu skólabörnin undantekningarlítið 12 klst. svefn til að ná fullri hvíld.
Næring
Góð næring hefur mikið að segja fyrir vöxt og þroska barna og hæfileika þeirra til að takast á við amstur dagsins. Staðgóður morgunmatur áður en lagt er af stað í skólann er ein mikilvægasta máltíð dagsins og einnig er mjög mikilvægt að nestið sé hollt. Grunnskóli Bolungarvíkur býður nemendum sínum upp á frían hafragraut í upphafi skóladags frá kl. 7:45-8:00
Höfuðlús
Af gefnu tilefni viljum við minna fólk á að vera vakandi gagnvart lúsinni þar sem hún er ekki útdauð og skýtur árlega upp kollinum í einhverjum skólum landsins, sérstaklega á haustin. Mikilvægt er að bregðast strax við ef grunur er um lús og láta hjúkrunarfræðing vita ef lús kemur upp í bekk. Ef allir bera ábyrgð á sér og sínum getum við komið í veg fyrir óþarfa óþægindi og vinnu.
til að ná í skólahjúkrunarfræðinginn þarf að hringja á heilsugæslustöðina í síma 456 7287
