A A A

Ung- og smábarnavernd

Íris lćknir skođar Margréti Gunnarsdóttur
Íris lćknir skođar Margréti Gunnarsdóttur


Ung- og smábarnavernd er á miðvikudögum á heilsugæslunni en heimavitjanir eru eftir samkomulagi.

Þegar nýir einstaklingar fæðast kemur tilkynning um það á viðkomandi heilsugæslustöð. Hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir hefur þá samband við foreldra og ákveður fyrstu heimsókn til fjölskyldunnar.  Einnig er gott ef foreldrar gætu hringt og látið vita þegar móðir og barn eru komin heim.

Ef fólk flytur í bæinn með smábörn þarf að til kynna það til heilsugæslunnar þannig að barnið haldi áfram í reglubundnum skoðunum og bólusetningum.

Heilsugæsluhjúkrunarfræðingur og ljósmæður sem koma frá sjúkrahúsinu á Ísafirði sjá um ung- og smábarnaverndina í samvinnu við lækni.  Ljósmæðurnar fylgja nýburunum eftir til 6 vikna aldurs þangað til fyrsta heimsókn á heilsugæslustöð er og þá tekur hjúkrunarfræðingurinn við.

Heilsugæslan leigir út ungbarnastólastóla gegn vægu gjaldi. Borga þarf 2500kr. fyrir stólinn en 1500 kr.  eru borgaðar til baka þegar stólnum er skilað.


Markmiđ ung- og smábarnaverndar


Markmið hennar er að fylgjast með andlegum, líkamlegum og félagslegum þroska frá fæðingu til skólaaldurs.  Einnig að veita foreldrum ráðgjöf, fræðslu og stuðning.  Í þessum skoðunum fara einnig fram ónæmisaðgerðir.

Heimsóknir og vitjanir í heimahús


Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir vitjar nýfæddra barna og fjölskyldna þeirra heim.
Fjöldi heimsókna fer eftir samkomulagi en algengt er að fjölskyldur séu heimsóttar 4 sinnum.
Í hverri skoðun er barnið vigtað, lengd þess og höfuðmál mælt og niðurstöður færðar inn á vaxtalínurit í heilsufarsskrá.
Foreldrum eru veittar ráðleggingar varðandi umönnun barnsins og eigin líðan. 

Heimsóknir á heilsugćslustöđina

Málfríđur kemur međ sinn yngissvein í skođun
Málfríđur kemur međ sinn yngissvein í skođun
  • Hefjast þegar barnið er sex vikna gamalt og er reglubundið fram að skólaaldri
  • Við þriggja mánaða aldur hefjast bólusetningar.
  • Fræðsla og ráðgjöf af ýnsu tagi m.a um brjóstgjöf, mataræði, tannvernd og slysavarnir er mikilvægur þáttur ungbarnaverndarinnar.
  • Ágætt er að skrifa hjá sér ýmsar spurningar sem vakna, áður en þið komið í heimsóknina.
  • Öll börn eru skoðuð af barnalækni á vissum aldursskeiðum og fá foreldrar gefinn upp tíma fyrir það.




 

Skođun ţriggja og hálfs árs barna

Íris Embla Stefánsdóttir kampakát í 3 1/2 árs skođun
Íris Embla Stefánsdóttir kampakát í 3 1/2 árs skođun
Hjúkrunarfræðingur heilsugæslunnar sér um heilbrigðisskoðanir þriggja og hálfs árs barna. Í skoðuninni felst m.a. þroskamat (hreyfiþroski, félagsþroski, málþroski og skapferli), sjónpróf og fræðsla.

Foreldrar panta tíma í síma 456-7287 fyrir barnið í þriggja og hálfs árs skoðun og eru þessar skoðanir gerðar á miðvikudögum.

Skođun fimm ára barna

Hjúkrunarfræðingur heilsugæslunnar sér um heilbrigðisskoðanir fimm ára barna. Öll fimm ára börn á Íslandi eru skoðuð á heilsugæslustöð. Út frá skoðuninni á að meta hvort barnið þarf á sérstakri hjálp að halda í sambandi við væntanlega skólagöngu við sex ára aldur.

Barnið kemur í fylgd með foreldri / forráðamanni í skoðunina. Reynt er að gera viðtalstímann áhugaverðan og auðveldan fyrir barnið. Í skoðuninni felst m.a. sjónpróf, heyrnarpróf, þroskamat, læknisskoðun og ónæmisaðgerð gegn barnaveiki, stífkrampa og kíkhósta.

Foreldrar panta tíma fyrir barnið í fimm ára skoðun í síma 456-7287

Eftirlit og ónćmisađgerđir til 5 ára aldurs


Aldur

Hver / hvar

Fræðsla og ráðgjöf

Ónæmisaðgerðir

7-10 dagaH heimaUpplýsingar um ung- og smábarnavernd. Brjósta-/pelagjöf. Helstu slysavarnir. Ef reykt er á heimilinu þá frætt um börn og óbeinar reykingar. Barnamappa kynnt og afhent 
2ja-3ja viknaH heimaBrjósta-/pelagjöf. Hreyfing og hvíld móður. Líðan foreldra eftir barnsburð Þroski og örvun barns. Nánar um slysavarnir. 
3ja-4ra viknaH heimaKynlíf eftir fæðingu og getnaðarvarnir. Reykingar í umhverfi barns. A og D vítamín. 
6 viknaH og L á hgst.Þroski og örvun barns. Brjósta-/pelagjöf 
9 viknaH heima/á hgst.Upprifjun á fyrri fræðslu eða fræðsla um efni sem ekki vannst tími til áður. Upplýsingar um ónæmisaðgerðir. Líðan foreldra eftir barnsburð. 
3ja mánaðaH og L á hgst.Brjósta-/pelagjöf. Þroski og örvun barns. Upplýsingar um aukaverkanir eftir bólusetningu.PaDT + Hib + IPV
5 mánaðaH á hgst.Brjósta-/pelagjöf, önnur næring. Svefn og svefnvandamál. Líðan móður. Hreyfiþroski barns.PaDT + Hib + IPV
6 mánaðaH og L á hgst.Mataræði. Slysavarnir. Tanntaka.Neis Vac – C
8 mánaðaH á hgst.Tannvernd. Mataræði. Þroski og örvun barns. Málörvun.Neis Vac – C
10 mánaðaH og L á hgst.Svefn. Agi og ástrík leiðsögn. Skór. 
12 mánaðaH á hgst.Þroski og örvun barns. Slysavarnir.PaDT + Hib + IPV
18 mánaðaH og L á hgst.Slysavarnir. Hreinlætisvenjur. Agi. Upplýsingar um aukaverkanir eftir bólusetningu. Hreyfing og leikir. Örnun barns. Reykingar og áfengis og vímuefnanotkun í umhverfi barns.MMR
3 ½ ársH og L á hgst.Slysavarnir. Sjónvarpsáhorf. Líkamleg áreitni. Mataræði. Tannvernd. Svefnvenjur. Reykingar og áfengis- og vímuefnanotkun í umhverfi barns. 
5 áraH og L á hgst.Útivist og hreyfing. SlysavarnirPaDT

H = Hjúkrunarfræðingur
L = Læknir
hgst. = Heilsugæslustöð
PaDT + Hib + IPV = Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi, haemophilius nfluenzae b, mænusótt
MMR = Rauðir hundar, mislingar, hettusótt
PaDT = Kíkhósti, barnaveiki, stífkrampi

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fćdd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón