A A A

Sagan

Sjúkrahúsið
Sjúkrahúsið
« 1 af 2 »



Sjúkraskýlið


     Tuttugasta og níunda nóvember árið 1947 er fyrst nefnt í fundargerðarbók Hólshrepps bygging læknisbústaðar í Bolungarvík.  Byggingarnefnd var svo kosin 1948 og í þá nefnd voru kjörnir auk héraðslæknisins Henriks Linnets þeir þórður Hjaltason og Guðfinnur Einarsson.  Í apríl 1949 var tekin ákvörðun um teikningu sem Ágúst Steingrímsson arkitekt og starfsmaður hjá húsameistara ríkisins hafði gert. Sýnt er að mikið hefur verið fjallað um hagkvæmni, stærð og fyrirkomulag. Var á efri hæð gert ráð fyrir íbúð héraðslæknis, biðstofum, aðgerðastofu, lyfjabúri (apóteki) en á neðri hæð 2 sjúkrastofum, íbúð og fleiru.  Í maí 1950 er lagt til að gerður verði "akord" samningur við Bjarna Magnússon og Kristinn Þórðarson.  Bjarni Magnússon í Tröð er því byggingarmeistari hússins.  Efri hæðin var fullgerð 1954 og var flutt í læknisbústaðinn sama ár.  Neðri hæðin var svo fullbúin 1958 og voru fyrstu sjúklingarnir vistaðir í marsmánuði það ár.  Læknir var þá í Bolungarvík Guðmundur heitinn Jóhannesson en fyrstu starfsstúlkurnar voru Margrét Eyjólfsdóttir og Hólmfríður Hafliðadóttir en sú síðarnefnda bjó í íbúð á neðri hæðinni ásamt eiginmanni sínum Sigurði Friðrikssyni. 
     Þetta ferli tók því 10 ár frá því að tekin var ákvörðum um byggingu og þangað til húsið var fullbúið og öll starfsemi komin í húsið.  Átti þetta myndarlega hús að leysa húsnæðisvandamál lækna og heilbrigðisþjónustunnar í Bolungarvík í eitt skipti fyrir öll.  Fljótlega fór þó að bera á þrengslum á neðri hæð hússins þar sem skjólstæðingar voru vistaðir.  


Heilsugæslustöðin

     Á þeim 30 árum sem liðin voru frá því að hafist var handa við byggingu Sjúkraskýlisins höfðu orðið miklar  og örar breytingar í viðhorfum til aðstöðusköpunar í heilbrigðisþjónustunni. Mikil þrengsli voru orðin á neðri hæð sjúkraskýlisins þar sem skjólstæðingar voru vistaðir og voru hugmyndir uppi um að breyta Sjúkraskýlinu og reyna þannig að bæta aðstöðuna.  Gerðar voru kostnaðaráætlanir og teikningar að breytingum sem ræddar voru innan bæjarstjórnar.  Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að ráðast í nýframkvæmd og byggja heilsugæslustöð við Höfðastíg.  Sjautjánda desember 1974 voru kosin í byggingarnefnd bæjarfulltrúarnir Ólafur Kristjánsson, formaður nefndarinnar, Kristín Magnúsdóttir, ritari og Hálfdán Einarsson meðstjórnandi.  Þann 22.febrúar 1975 er kynnt og samþykkt á bæjarstjórnarfundi teikningar af heilsugæslustöð Bolungarvíkur sem Jes Einar Þorsteinsson, arkitekt hannaði.  Byggingarmeistarar voru tveir, Sigurður K. Eggertsson sá um I. áfanga og og Jón Fr. Einarsson um II. áfanga.  Vígsluhátíð fyrir heilsugæslustöðina var haldin 25. nóvember 1978. Kvenfélagið Brautin hafði þá hreinsað til og þrifið áður en flutt var inn og sáu þær jafnframt um veitingarnar á vígsluhátíðinni.

Aftur að sjúkraskýlinu

     Árið eftir að heilsugæslustöðin var tekin í gagnið var farið að gera verulega breytingar á Sjúkraskýlinu þar sem þar átti að fjölga mjög skjólstæðingum. Efri og neðri hæðin voru nú báðar nýttar fyrir vistmenn en varð það fljótt svo að þrengslin voru orðin það mikil að samkvæmt greinargerð sem Pétur Pétursson, læknir skrifaði 1986 þurfti þá að vista 18 sjúklinga í rými sem samkvæmt stöðlum heilbrigðisyfirvalda rúmaði 12. Í þessari sömu greinargerð skrifaði hann um skort á ymsri aðstöðu og búnaði bæði fyrir starfsfólk og vistmenn. Á þessum fyrstu árum Sjúkrahússins í Bolungarvík fólst starfsemi þess fyrst og fremst í umönnun aldraðra en þar fór einnig fram umönnun og meðferð sjúkra um skamman tíma sem ekki þurftu meðferð með flóknum tækjakosti eða verulega sérhæfðs starfsfólk, fæðingarhjálp og umönnun í sængurlegu.  Síðasta fæðingin á Sjúkraskýli Bolungarvíkur var 18.mars 1987.  Síðan 1979 hefur lítil breyting verið gerð á húsakostum Sjúkrahúss Bolungarvíkur og er það álit margra að það sé orðið "barn síns tíma" hvað varðar aðstöðu bæði fyrir skjólstæðinga sem og starfsfólk.  En þrátt fyrir að húsakostur þurfi verulega andlitslyftingu hefur "Sjúkraskýlið" eins og það var kallað í upphafi alltaf verið rómað fyrir heimilislegt andrúmsloft og einstaklega natna umönnun skjólstæðinga.

Hildur Elísabet Pétursdóttir
Með góðri hjálp frá Ólafi Kristjánssyni, fyrrum bæjarstjóra Bolungarvíkur
    

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fædd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón