Hagnýtar upplýsingar
Á sjúkrahúsinu eru 10 hjúkrunarrými og eru það allt einstaklingsherbergi. Ef hjón óska eftir að fá að vera saman í herbergi er möguleiki að verða við þeirra ósk.
Áherslan er lögð á heimilislegt og notalegt umhverfi þar sem reynt er að veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra þá bestu umönnun og þjónustu sem völ er á.
Heimsóknartími á sjúkrahúsið er frjáls enda er hér um að ræða eintaklinga sem eiga hér heima og mega taka á móti gestum þegar þeir vilja og treysta sér til.
Símanúmer sjúkrahússins er 456 7147 þar geta aðstandendur fengið upplýsingar um sitt fólk.
Beint símanúmer til skjólstæðinga er 456 7143, einnig er möguleiki á að láta tengja síma beint inn á herbergin sem margir hafa gert.
Líknarfélög í Bolungarvik hafa verið mjög dugleg við að standa við bakið á sjúkrahúsinu og gefið þar inn sjúkrarúm, hjólastóla og fleira.
Þagnarskyldan
Mikilvægt er að treyggja skjólstæðingum öryggi og virða einkalíf þeirra. Þetta er í heiðri haft á Heilbrigðisstofnuninni og skrifa allir starfsmenn undir þagnarskyldu þegar þeir byrja að vinna.
Þagnarskylda
"Mér hefur verið gerð ljós þýðing þagnarskyldu í starfi mínu. Ég heiti því að hnýsast ekki í eða ræða um einkamál sem ég kann að fá vitneskju um í starfi mínu á stofnuninni. Mér er kunnungt um að brot á þessu varðar við almenn hegningarlög"
Það er ekki síður mikilvægt að þeir sem komi í heimsókn á sjúkrahúsið hafi þetta í heiðri líka, að það sem þeir sjá og heyra um aðra vistmenn hér, geymi þeir hjá sjálfum sér.
