A A A

Starfsemi



Sjúkraþjálfun - hreyfing
Skjólstæðingar hafa mjög góðan aðgang að sjúkraþjálfara og tækjum í sjúkraþjálfuninni. Fanney Pálsdóttir er sjúkraþjálfari á Heilbrigðisstofnuninni.  Í sal sjúkraþjálfunarinnar eru fastir tækjatímar tvisvar í viku fyrir þá sem treysta sér til og á sjúkrahúsinu er stólaleikfimi tvisvar í viku. Fjóla Bjarnadóttir sjúkraliði sér um leikfimina.  Þeir sem þurfa einkatíma hjá sjúkraþjálfara fá þar mjög góða meðferð. Í sjúkraþjálfuninni er heitur pottur og mega þeir sem treysta sér til fara í hann.

Aðkeyptur matur og þvottur
Möguleiki er fyrir eldri borgara að fá keyptan mat frá eldhúsi sjúkrahússins sem og að fá þveginn af sér þvott fyrir vægt gjald.  Hafa skal samband við Huldu Karlsdóttur í síma 456 7147 til að ganga frá því.

Dægrastytting
Ekki er starfandi sérstakt föndur eða iðjuþjálfun við sjúkrahúsið en í Árborg er staðsett félagsstarf aldraða og eru íbúar sjúkrahússins velkomnir þangað.
Frímúrarar hafa séð um upplestur yfir vetrartímann á sunnudögum kl. 15:45

Prestþjónusta
Helgistundir eru á sjúkrahúsinu einu sinni í mánuði.  Messað er á páskum og jólum. Mjög gott aðgengi er að presti þar fyrir utan.

RAI-mat
RAI-mat hefur verið framkvæmt á sjúkrahúsinu frá árinu 1996. Um er að ræða mat á raunverulegum aðbúnaði íbúa á öldrunarstofnunum og eru niðurstöðurnar sendar til RAI-matsnefndar sem staðsett er í Reykjavík.  Á árinu 1999 var þetta mat fært á tölvutækt form.

Upplýsingar

Neyðarnúmer:
112
Neyðarnúmer læknis:
690 7600
Sími á heilsugæslu:
456 7287
Sími á sjúkrahúsi:
456 7147
Sími í sjúkraþjálfun:
456 7248

Staðsetning:
 Heilsugæslustöð, Höfðastíg 15
 Sjúkrahús, Miðstræti 17
 Sjúkraþjálfun, Aðalstræti 22

Nýburar

Stúlka Rendall er fædd
19.06.2008 kl: 00:03
Vefumsjón