Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfari er Fanney Pálsdóttir
Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara er Elísabet Kristín Einarsdóttir
Símanúmer í sjúkraþjálfuninni er 456-7248
Markmið sjúkraþjálfunar
Að veita skjólstæðingum sjúkraþjálfunar viðeigandi þjálfun, fræðslu og ráðgjöf með það að markmiði að auka eða viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri getu.
Sjúkraþjálfun í Bolungarvík
Sjúkraþjálfun hefur verið starfrækt við Heilbrigðisstofnunina í Bolungarvík frá árinu 1982. Í fyrstu var hún staðsett í litlu herbergi á neðri hæð sjúkrahússins en er nú komin í vel tækjum búna aðstöðu í kjallara Árborgar. Þar er æfingasalur með göngubretti, krossþjálfa, þrekhjólum og fjölbreyttum æfingatækjum sem og heitur pottur. Í sjúkraþjálfuninni eru bekkir til einstaklingsmeðferða og öll helstu tæki sem notuð eru í sjúkraþjálfun eins og hljóðbylgjur, stuttbylgjur, togbekkur, og heitir/kaldir bakstrar.
Líknarfélög í Bolungarvík hafa gert vel við Heilbrigðisstofnunina í gegnum tíðina. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Bolungarvík er aðal stryktaraðili sjúkraþjálfunarinnar og hefur gefið nær öll tæki sem þar eru notuð.
Hvernig fæ ég sjúkraþjálfun?
Til þess að fá sjúkraþjálfun þarf læknir að hafa metið þig og skrifað upp á beiðni sem þú ferð svo með til sjúkraþjálfara sem gefur þér tíma.
Hverjir mega nota aðstöðuna?
Opnunartími sjúkraþjálfunarinnar er 8-16 alla virka daga. Þar er opið fyrir fólk sem hefur verið í meðferð hjá sjúkraþjálfara og æfir sig sjálft eftir prógrammi í samráði við þjálfara. Svokallaður tækjahópur á vegum sjúkrahússins er tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum milli 10 og 11. Leikfimi eldri borgara fer fram í salnum á mánudögum frá 11-11:45. Fjóla Bjarnadóttir, sjúkraliði sér um þessa hópa.
Öllum Bolvíkingum er frjáls aðgangur að tækjasalnum á opnunartíma sjúkraþjálfunarinnar.
Starfsemi sjúkraþjálfunar
Starfsemin er afar fjölbreytt og skiptist í:
* Göngudeildarþjónustu sem sinnir meðal annars
- álagssjúkdómum
- barnasjúkraþjálfun
- endurhæfingu eftir slys og aðgerðir
- íþróttameiðslum
- gigtarmeðferð
- o.fl
* Leikfimi fjórum sinnum i viku fyrir vistmenn sjúkrahússins.
* Leikfimi fyrir eldri borgara tvisvar í viku. Á mánudögum frá kl 11 til 11:45 í sal sjúkraþjálfunar og á fimmtudögum á sama tíma í sal Safnaðarheilmilisins.
* Hjálp við val og pöntun á hjálpartækjum og kennd notkun þeirra
* Fyrirtækjaþjónusta
Hvernig er greitt fyrir sjúkraþjálfun?
Verðlag er samkvæmt gjladskrá Tryggingarstofnunar Ríkisins
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Tryggingarstofnunar http://www.tr.is/heilsa-og-sjukdomar/thjalfun-og-endurhaefing/
